Kvenfélagasamband Íslands

Þú ert hérna: Forsíða
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Leiðrétt prjónauppskrift Senda á facebook Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 12. desember 2011 12:49

Villa er í uppskrift að Strokk í 4. tbl. Húsfreyjunnar 2011, jólablaðinu s: 48

Í lok 1. umferðar stendur að það eigi að prjóna 2 sléttar en það rétta er að það á að prjóna 1 slétta þar (3 sléttar lykkjur á milli stiga):
Leiðrétting:
 1. umf.: Prjónið *2 sléttar lykkjur, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, sláið bandinu tvisvar upp á prjóninn, takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunum saman yfir, sláið bandinu tvisvar upp á prjóninn, prjónið 2 lykkjur saman, 1 slétt*. Endurtakið frá * til * út umferðina.

 
Úthlutað úr Minningasjóði Helgu M. Pálsdóttur Senda á facebook Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 18. nóvember 2011 22:30

Á Jólafundi Kvenfélagasambands Íslands sem haldinn var í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum í kvöld var úthlutað styrk úr Minningarsjóði Helgu M. Pálsdóttur

Styrkinn hlaut Andrea Fanney Jónsdóttir klæðskerameistari sem stundar nám í textílhönnun, með áherslu á prjón, í Glasgow School of Art í Skotlandi.
Ritgerð Andreu mun fjalla um íslenskan ullariðnað og sóknarfæri hans.

 
Formannaráðsfundur og námskeiðið „Konur kalla á konur" að Hallveigarstöðum Senda á facebook Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 08. nóvember 2011 18:31

Formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands verður haldinn að Hallvegarstöðum laugardaginn 19. nóvember nk.  kl. 9.15 -14.00

Jafnframt verður námskeiðið „Konur kalla á konur“  haldið að Hallveigarstöðum á sama tíma. kl. 9.15 - 14.00

Námskeiððið hefur verið kennt víða um land undanfarið ár við miklar vinsældir.

Það er einkum ætlað þeim konum sem starfa innan stjórna félaganna eða hafa hug á því  en allar konur sem starfa í kvenfélögun innan Kvenfélagasambands Íslands eru velkomnar á námskeiðið.

Meðal efnis sem kennt er á námskeiðinu er:
Ábyrgð og skyldur stjórnarmanna í kvenfélögum ,verkefnaskipting stjórnar, undirbúningur starfsárs, mannleg samskipti, félagaöflun og mótun framtíðarsýnar, hlutverk Kvenfélagasambands Íslands og héraðssambanda þess.

Kostnaður við námskeiðið er kr. 2500 og innifelur sá kostnaður öll námskeiðisgögn.

Í námskeiðislok, kl. 14.00 er konum af námskeiðinu ásamt konum af formannafundinum boðið að skoða Alþingishúsið undir leiðsögn þingkvenna.

Skráningar óskast fyrir 15. nóvember nk. til Kvenfélagasambands Íslands s: 5527430 og á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 44


Húfuverkefni KÍ.

Á árinu 2010 fengu allir nýburar á Íslandi húfu að gjöf í tilefni af 80 ára afmælis KÍ.

Húfuverkefni

Upplýsingar um verkefnið  og uppskrift að KÍ húfunni.
Uppskriftabækur kvenfélaganna

Meira

Húsfreyjan

Áskrift að Húsfreyjunni kostar 4.100 krónur á ári fyrir fjögur tölublöð sé greitt með greiðslukorti en 4.300 krónur ef óskað er eftir að greiða í gegnum innheimtukerfi banka/ greiðsluseðill.

Póstlisti KÍ